Önnur samfélagsleg verkefni

Ýmis upplýsingatækniverkefni Landsnets og samstarfsaðila fyrirtækisins hafa komið samfélaginu til góða.  Má þar t.d. nefna:

Afnot af ljósleiðara

Ábúendur á ákveðnum jörðum, sem ljósleiðari Landsnets frá Reyðarfirði um Fljótsdal til Akureyrar, liggur um hafa fengið afnot af einu ljósleiðarapari í strengnum en með því aukast mjög möguleikar þeirra til að nýta sér þá upplýsingatækniþjónustu sem í boði er.

Tetravæðing

Í samvinnu við þjónustuaðila Landsnets hefur verið byggt upp öruggt og víðfeðmt Tetra hóp- og öryggisfjarskiptakerfi. Með notkun kerfisins eykst verulega öryggi starfsmanna Landsnets og rekstraröryggi raforkukerfisins. Um leið eykst öryggi almennings þar sem þetta er sameiginlegt kerfi Landsnets og ýmissa viðbragðsaðila s.s. lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita.

GSM væðing í dreifbýli

Dæmi eru um að orkufyrirtækin hafi tryggt GSM dreifingu á stöðum, sem ekki eru á dreifisvæðum fjarskiptafyrirtækjanna. Einkum er um að ræða svæði, á hálendinu þar sem orkuvinnsla og flutningur á sér stað s.s. á Kárahnjúkasvæðinu, við Blöndu og víðar.

Afnot af aðstöðu

Landsnet leitast við að vera ,,góður granni“ þeirra sem búa í nálægð mannvirkja fyrirtækisins. Til dæmis má  nefna að netþjónafyrirtæki og dreifiveitur dagskrárefnis hafa fengið heimildir til að nýta aðstöðu í tengivirkjum og aflstöðvum í dreifbýli. Þessi stuðningur er forsenda þess að hægt sé að veita íbúum í dreifðari byggðum slíka þjónustu á viðráðanlegu verði.

Verknám

Landsnet ræður á hverju ári verkfræðinema til vinnu í sumar- og vetrarleyfum í verkefni þar sem tekist er á við flókin úrlausnarefni, allt frá sérsmíði rafeinda- og fjarskiptabúnaðar til þróunar hugbúnaðar sem tengist fjarstýringu raforkukerfisins.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410