Landsnet :: Umhverfi og samfélag :: Samfélagsleg verkefni :: Stofnun Sæmundar fróða

Samstarf Landsnets og Stofnunar Sæmundar fróða

Sæmundur á selnumSamstarfssamningur var gerður árið 2007 milli Landsnets og Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands um að gera samanburðarkönnun á háspennulínum og jarðstrengjum, þar sem lagt væri mat á atriði eins og umhverfisáhrif, sjónræn áhrif, þjóðhagsleg áhrif og síðast en ekki síst hvaða áhrif mismunandi útfærslur hefðu á gjaldskrá Landsnets fyrir raforkuflutning.

Hlutverk Landsnets er að sinna raforkuflutningi og kerfisstjórnun. Þessi verkefni krefjast bestu þekkingar og lausna og því er mikilsvert fyrir fyrirtækið að eiga gott samstarf við öfluga rannsóknarstofnun eins og Háskóla Íslands. Stofnun Sæmundar fróða (SSf) er ætlað að leiða saman vísindamenn úr mörgum greinum til að leysa vandamál sem varða hin ýmsu svið sjálfbærrar þróunar. Rannsóknir varðandi nýtingu náttúruauðlinda eru mikilvægur þáttur í starfi stofnunarinnar.

Áhrif á umhverfið

Meðal þeirra þátta sem Landsnet hefur hug á að rannsaka eru mismundandi kostir við orkuflutninga. Hröð aukning raforkuframleiðslu Íslendinga kallar á aukið umfang flutningskerfa, sem ýmist geta notað háspennulínur eða jarðstrengi. Val á flutningsleið byggist á mörgum þáttum sem eru breytilegir frá einu svæði til annars. Ýmis tæknileg vandamál þarf að leysa, sem meðal annars eru háð land- og jarðfræðilegum aðstæðum, veðurfari, hættum á náttúruvá o.fl. Aðrir þættir sem vaxandi áhersla er lögð á varða áhrif orkumannvirkja á umhverfið og hafa í för með sér bæði beinan og óbeinan kostnað.

Háspennulínur

Til beinna áhrifa má telja jarðrask, mengun og áhrif segulsviða, sem geta haft áhrif á afkomu lífríkis í nágrenni við mannvirkin. Óbein áhrif eru líka mikilvæg og má þar til dæmis nefna sjónmengun af völdum mannvirkjanna. Slík áhrif hafa lítt verið rannsökuð hér á landi en menn hafa vaknað til vitundar um mikilvægi þess að taka tillit til þessara þátta við ákvörðun um hvernig og hvar leggja skuli háspennulínur. Þetta kallar á nýjar rannsóknir, meðal annars á viðhorfum mismunandi hópa og hagsmunaaðila. Síðast en ekki síst þarf að rannsaka efnahagsleg áhrif hinna mismunandi lausna. Hvað kosta þær og hver eru áhrifin á gjaldskrá fyrirtækisins?

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410