Smelltu á mynd til að stækka
Frá fornleifauppgreftri við Búðarárbakka.
Stór hluti rannsókna á náttúrufari, fornminjum og menningarminjum á hálendinu hefur farið fram í tengslum við virkjana- og línuframkvæmdir í raforkukerfinu. Þannig hefur vitneskja okkar á náttúrufari landsins aukist í takt við aukna raforkunotkun.
Fornleifarannsóknir
Meðal verkefna, sem Landsnet hefur styrkt, er rannsókn á fornleifum á Búðarárbakka í uppsveitum Árnessýslu.
Til eru heimildir um Þorkel á Búðarárbakka sem þar bjó í óþökk sveitunga sinna á 17. öld. Fornminjarnar á Búðarárbakka voru friðlýstar árið 1927 en nákvæm staðsetning þeirra var gleymd. Fornleifaskráning og könnunarrannsókn, sem tengdist framkvæmdunum við Sultartangalínu 3, leiddi eiginlega staðsetningu Búðarárbakka í ljós á ný.
Í þessu rannsóknarverkefni er skyggnst inn í líf almúgamanns með því að lesa í fornleifarnar sem hann lét eftir sig.
Smelltu á mynd til að stækka