Landsnet :: Umhverfi og samfélag :: Umhverfismál
Tengiliður
Hildur B. Hrólfsdóttir
Gæða- og umhverfisstjóri
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
hildur@landsnet.is
S: 563 9312

Umhverfismál

Landsnet leggur metnað sinn í að umgangast landið af virðingu, forðast allt óþarfa rask og taka tillit til náttúru og umhverfis í allri starfseminni.

Jafnframt leggur fyrirtækið áherslu á að starfsemin fari fram í góðri sátt við helstu hagsmunahópa, sveitarfélög, jarðeigendur og ábúendur þeirra jarða sem línur Landsnets liggja um.

Smelltu á mynd til að stækka

Áherslur Landsnets í umhverfismálum

Með markvissri stjórnun umhverfismála lágmarkar Landsnet áhrif starfseminnar á umhverfið. Fylgjst er með umhverfisáhrifum rekstursins og grípið til aðgerða ef þörf krefur. Landsnet vill eiga opna og hreinskipta umræðu og samvinnu við yfirvöld, stofnanir og almenning um umhverfismál og leggja sitt af mörkum til að bæta árangur samfélagsins í umhverfismálum.

Stefna og gildi Landsnets endurspegla þessar áherslur. 

Stefna LandsnetsGildi Landsnets

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410