Mat á umhverfisáhrifum

Smelltu á mynd til að stækka

Það er stefna Landsnets að röskun umhverfis á framkvæmdatíma sé í lágmarki og frágangur í verklok til fyrirmyndar

Megintilgangur með mati á umhverfisáhrifum er að lýsa á hlutlægan hátt umhverfisáhrifum viðkomandi framkvæmdar, þannig að þeir, sem veita leyfi fyrir framkvæmdunum, geri sér fulla grein fyrir því hver áhrifin verða.
Á grundvelli þessara upplýsinga geta leyfisveitendur sett skilyrði fyrir framkvæmdinni sem lágmarka umhverfisáhrifin enn frekar. Landsnet ber ábyrgð á að skilyrðum opinberra aðila sé hlýtt og að gripið sé til hugsanlegra mótvægisaðgerða vegna framkvæmdarinnar.

Það er stefna Landsnets að lágmarka óæskileg áhrif starfseminnar á umhverfið og hefur fyrirtækið markað sér sérstaka umhverfisstefnu vegna framkvæmda; til að stuðla að því að umhverfisröskun á byggingartíma verði í lágmarki og frágangur við verklok til fyrirmyndar.

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410