Landsnet :: Umhverfi og samfélag :: Umhverfismál :: Vöktun umhverfisþátta

Smelltu á mynd til að stækka

Olía á aflspennum er á meðal umhverfisþátta sem huga þarf að.

Vöktun umhverfisþátta

Helstu þættir í rekstri raforkukerfisins, sem haft geta umhverfisáhrif, eru olía á aflspennum og gróðurhúsalofttegundin SF6 sem er notuð sem neistavari í raforkukerfinu. Bæði þessi efni eru notuð til að einangra og kæla. Þau umlykja rafbúnaðinn í lokuðu kerfi og brenna því hvorki né eyðast.

Innra gæðaeftirlit

Rekstur tengivirkja er háður öflugu innra gæðaeftirliti hjá Landsneti og spennar og annar rafbúnaður í tengivirkjum er vaktaður allan sólarhringinn með fjargæslu frá stjórnstöð Landsnets. Starfsmenn stjórnstöðvar geta því gert strax viðvart komi viðvörun um leka í rafbúnaði.

Starfsmenn viðhaldsdeildar Landsnets hafa einnig reglulegt eftirlit með öllum rafbúnaði fyrirtækisins. Ef tæma þarf einangrunargas af rafbúnaði vegna viðgerða er það gert með svokallaðri gasfreyju, sem geymir gasið á meðan viðgerð fer fram,og gerir Landsneti kleift að endurnýta það að viðgerð lokinni.

Alþjóðlegur staðall

Landsnet hefur sett sér það markmið að rýrnun SF6 einangrunargass í rofabúnaði fari aldrei yfir 0,5% á ári sem er í samræmi við alþjóðlega staðalinn CEI IEC 62271-203: 2003.

Gróðurhúsalofttegundir

Alþjóðlegur staðall CEI JEC 62271-203-2003

  • Landsnet
  • Gylfaflöt 9
  • 112 Reykjavík
  • Sími 563 9300
  • Fax 563 9309
  • landsnet@landsnet.is
  • Kennitala 580804-2410