Ferli um upplýsingagjöf og leiðbeiningar til þeirra sem hyggja á háfermisflutninga undir flutningslínur Landsnets.
Háfermisflutningur telst vera sá flutningur sem er hærri en 4,2 m. samkvæmt skilgreiningu í vegalögum.
Landsnet er umsagnaraðili allra flutninga sem falla undir háfermisflutninga ef akstursleið liggur undir háspennulínur fyrirtækisins.
Ef þú hyggur á háfermisflutning, sendu inn umsókn og við munum svara innan tveggja sólarhringa.
Þurfi að sækja um rof á línu vegna háfermisflutnings þarf umsókn um rof að berast Stjórnstöð Landsnets með minnst viku fyrirvara.
Sjá meðfylgjandi töflu yfir öryggis- og hættufjarlægðir háspennulína hér að neðan.
SPENNA |
Hættufjarlægð DL |
Öryggisfjarlægð DV |
33 kV |
0,8 m |
2 m |
66 kV |
1,0 m |
3 m |
132 kV |
1,5 m |
4 m |
230 kV |
2,5 m |
5 m |