Í kerfisáætlun er tekið tillit til raforkuspár og fyrirséðra breytinga á inn- og útmötun einstakra viðskiptavina.
Yfirlit yfir framkvæmdir
Tilgangur skýrslunnar er að gefa yfirlit yfir framkvæmdir sem ráðgerðar eru á næstu árum til að styrkja og stækka flutningskerfi Landsnets. Einnig er gerð grein fyrir helstu eiginleikum flutningskerfisins, svo sem aflgetu, áreiðanleika, tapi, styrkleika á afhendingarstöðum, líkum á aflskorti og helstu takmörkunum kerfisins.
Áætlunargerð
Gerð kerfisáætlunar er meðal þeirra leiða sem við nýtum okkur til að viðhalda og tryggja örugga og hagkvæma raforkuafhendingu til viðskiptavina.
Með útgáfu kerfisáætlunar upplýsir Landsnet viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila um þróun flutningskerfisins og markaðar í stórum dráttum. Áætlunin er ekki bindandi heldur er hún tæki Landsnets til að kynna þau verkefni sem fyrirtækið telur mikilvæg til að stuðla að öflugu raforkuflutningskerfi til framtíðar
Forsendur áætlanagerðar
Kerfisáætlun gengur út frá hámarksaflnotkun landsins fremur en heildarorkunotkun þar sem orkunotkun dreifist ekki jafnt yfir daga, vikur eða mánuði. Álagsþróun er áætluð út frá raforkuspá sem unnin er af raforkuhópi Orkuspárnefndar, gildandi stóriðjusamningum á tímabilinu sem áætlunin nær yfir, auk sérstakra áherslna Landsnets.