Í niðurstöðum í mati Vinnueftirlitsins segir meðal annars:
- Ganga ráðstafanir fyrirtækisins í sumum tilvikum lengra en lög og reglur segja til um.
- Það er ljóst að fyrirtækið leggur mikla áherslu á standa vel að vinnuverndarmálum og forvörnum á því sviði.
- Er það mat Vinnueftirlitsins að fyrirtækið hafi náð framúrskarandi árangri og sé til fyrirmyndar.
Heildar niðurstaða Vinnueftirlitsins er að Landsnet er flokkað í flokk 1 sem er besta einkunn sem hægt er að fá. Lét úttektarmaður þess getið að frekar sjaldgæft væri að fyrirtæki næðu að vera flokkuð í 1. flokk sem er meistaraflokkur á svið öryggismála.