Landsnet mun leggja jarðstreng í Dýrafjarðargöng á Vestfjörðum sem leysa mun af hólmi hluta Breiðadalslínu 1, þar sem aðstæður eru erfiðar og þannig auka öryggi flutningskerfisins á Vestfjörðum.
Framkvæmdir við göngin hófust árið 2017, og áætlað er að strengurinn verði lagður í ársbyrjun 2020 en jafnframt er áætlað að vinnu við göngin ljúki síðla það ár.