Innviðauppbygging AUS-08
Vopnafjarðarlína 1 er um 60 km löng, 66 kV loftlína sem liggur frá Lagarfossstöð til Vopnafjarðar. Áformað er að leggja hluta hennar í jörð, á um tæplega 10 km löngum kafla, yfir Hellisheiði eystri þar sem veðurskilyrði eru erfið, svæði torfarið og slysahætta við rekstur og viðhald línunnar.
Framkvæmdin er áætluð sumarið 2021.