Til aðgreiningar hefur Landsnet ákveðið að breyta kalli sínu í TETRA samskiptum úr „stjórnstöð Landsnets“ yfir í „Kerfisstjórn“. Breytingin tekur gildi frá og með 22.október 2026.
Það hefur undanfarið komið upp misskilningur í samskiptum vegna líkinda í kalli annara stjórnstöðva í raforkukerfinu og stjórnstöðvar Landsnet. Þetta er öryggismál og því afar mikilvægt að TETRA samskiptin séu skýr og tvímælalaus. Þá endurspeglar Kerfisstjórn betur hlutverk Landsnets í stýringu flutningskerfisins.
Við leggjum áherslu á að TETRA sé einungis notuð í formlegum samskiptum við Kerfisstjórn í tengslum við stýringu flutningskerfis raforku.