Upplýsingagjöf og leiðbeiningar um háfermisflutninga undir flutningslínur Landsnets

Háfermisflutningur telst vera sá flutningur sem er hærri en 4,2 metrar samkvæmt skilgreiningu í vegalögum.

Landsnet er umsagnaraðili allra flutninga sem falla undir háfermisflutninga ef akstursleið liggur undir háspennulínur fyrirtækisins.

Ef þú hyggur á háfermisflutning, sendu inn umsókn og við munum svara innan tveggja sólarhringa.

Þurfi að sækja um rof á línu vegna háfermisflutnings þarf umsókn um rof að berast Stjórnstöð Landsnets með minnst viku fyrirvara.

Sækja um rof á línu vegna háfermisflutninga