Framkvæmd
Akranes er tengt við meginflutningskerfið með tveimur 66 kV línum, Akraneslínu 1 sem er jarðstrengur frá Brennimel að Akranesi og Vatnshamralínu 2 sem liggur frá Vatnshömrum að Akranesi. Vatnshamralína 2 er tréstauralína frá árinu 1966. Í tengslum við byggingu nýs tengivirkis á Akranesi árið 2016 voru 1,3 km línunnar lagðir í jarðstreng að Akranesgatnamótum og næstu 3,6 km árið 2020 í tengslum við frekari uppbyggingu iðnaðarhverfis. Síðar er fyrirhugað að leggja strenginn alla leið í tengivirkið í Brennimel og rífa loftlínuhluta Vatnshamralínu 2. Hinn nýi 20 km langi jarðstrengur (sem lagður verður í þremur áföngum) kemur þá til með að heita Akraneslína 2.

Tengiliðir

Elín Sigríður Óladóttir
Samráðsstjóri
563 9429

innviðauppbygging
VEL-03

Lokið
Aftur í yfirlit framkvæmda