Verkefnið Akureyri – Dalvík felst í lagningu nýs 66 kV jarðstrengs, Dalvíkurlínu 2, um 42 km leið frá Akureyri til Dalvíkur. Núverandi tenging, Dalvíkurlína 1, verður áfram rekin í óbreyttri mynd.
Tilgangur verkefnisins er að tryggja örugga orkuafhendingu á Dalvík með tvöföldun tengingar við meginflutningskerfið.
Í verkefninu felst einnig endurnýjun 66 kV rafbúnaðar í tengivirkinu á Dalvík, uppsetning 66 kV útjöfnunarspólu í tengivirkinu, auk annarra breytinga á tengivirkinu á Rangárvöllum við Akureyri.
Áætlað er að Dalvíkurlína 2 verði spennusett um mitt ár 2026.