Verkefnið felst í að reisa 220 kV loftlínu, samtals um 100 km langa, Blöndulínu 3 frá Blöndu að Rangárvöllum á Akureyri. Línan tengist inn í tengivirkið á Rangárvöllum með jarðstreng. Einnig verður byggt nýtt 220 kV tengivirki við Blöndu.
Línan fer um fjögur sveitarfélög, Akureyrarbæ, Hörgársveit, Sveitarfélagið Skagafjörð og Húnabyggð. Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta afhendingaröryggi í meginflutningskerfi Landsnets ásamt því að auka sveigjanleika og möguleika til að miðla orku milli landshluta.
Núverandi lína er komin til ára sinna og samræmist illa þeim kröfum sem nútímasamfélag gerir til raforkuflutningsmannvirkja og tiltæki orkuafhendingar.
Ný byggðalína mun enn fremur minnka töp í flutningskerfinu ásamt því að auka möguleika á uppbyggingu orkufrekrar atvinnustarfsemi. Framkvæmdin er hluti af byggingu nýrrar byggðalínu sem kemur til með að tengja saman sterka flutningskerfið á Suðvesturlandi og flutningskerfi og framleiðslustaði raforku á Norður- og Austurlandi.
Umhverfismatsskýrslu var gefin út fyrir verkefnið og gaf Skipulagsstofnun út álit í desember 2022.