Framkvæmd

Ný jarðstrengstenging, Neskaupstaðarlína 2, milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar var tekin í rekstur í júní 2021 en jafnhliða voru tengivirkin á Eskifirði og Neskaupstað stækkuð tilsvarandi.  Þar með er flutningskerfið tvítengt við Neskaupstað sem áður var einungis tengdur með einni loftlínu. 

Neskaupstaðarlína 2 er  17 km langur, 66 kV jarðstrengur milli tengivirkja Landsnets á Eskifirði og Neskaupstað og liggur meðfram vegum og í gegnum Norðfjarðargöng.

Framkvæmdir hófust 2019 og lauk sumarið 2021.

Tengiliðir

Bjarni Jónsson
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging
AUS-09

Lokið
Aftur í yfirlit framkvæmda