Framkvæmd

Verkefnið Hella - Rimakot felst í lagningu nýs 132 kV jarðstrengs, Rimakotslínu 2, um 36 km leið frá Hellu, fram hjá Hvolsvelli og að tengivirki í Rimakoti í Austur-Landeyjum. Núverandi tengingar, Rimakotslína 1 (loftlína) frá Hvolsvelli í Rimakot og Hellulína 2 (jarðstrengur) milli Hellu og Hvolsvallar, verða áfram reknar í óbreyttri mynd.

Tilgangur verkefnisins er að auka stöðuleika og öryggi raforkuafhendingar á Suðurlandi, og auk þess liður í bættri tengingu til Vestmannaeyja, en nýr sæstrengur til Eyja kemur síðar.

Í verkefninu felst einnig stækkun tengivirkjana á Hellu og í Rimakoti. Á Hellu verður gerð viðbygging fyrir einn 66 kV rofareit og í Rimakoti verður tengivirkið stækkað um tvo 66 kV rofareiti, einn fyrir tengingu jarðstrengsins Rimakotslínu 2 og einn fyrir tengingu á fyrirhuguðum sæstreng til Vestmanneyja, Vestmannaeyjalínu 4.  Í Rimakoti verður einnig byggt yfir útjöfnunarspólu sem tengist jarðstrengnum. Í byggingunni verða einnig rými fyrir útjöfnunarspólur fyrir Vestmannaeyjalínu 4 og Vestmannaeyjalínu 5.

Áætlað er að verkframkvæmdir hefjist sumarið 2024 og að spennusetning verði haustið 2025.
 

Tengiliðir

Friðrika Marteinsdóttir
Verkefnastjóri
563 9300
Árni Sæmundsson
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging

Í framkvæmd
Aftur í yfirlit framkvæmda