Framkvæmd

Kolviðarhólslína 1, loftlína milli Hellisheiðar og Geithálss á Hólmsheiði var endurbyggð með það að markmiði að auka flutningsgetu línunnar umtalsvert sem og að draga úr flutningstöpum.

Settur var sverari leiðari á línuna frá Kolviðarhól að tvírása möstrum næst Geithálsi. Um leið voru undirstöður, stagfestur og möstur endurnýjuð á kaflanum frá mastri 6 til 38 (af 45). Framkvæmdum lauk í október 2023.

Unnið er að undirbúningi að endurbyggja línuna frá mastri nr. 38 að Geithálsi í línustæði Sogslínu 2.

Tengiliðir

Daníel Sch. Hallgrímsson
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging

Lokið
Aftur í yfirlit framkvæmda