Í tengivirkinu Rangárvöllum verður sett upp 20-40 MVAr spóla til launaflsútjöfnunar á 132 kV Akureyri. Meðfylgjandi verkefninu verður nokkuð viðhald og tilfærslur á spennum. Spennir 6 er í dag tímabundinn spennir og nýr spennir verður settur upp í hans stað. Einnig verður bætt við 132 kV tengingu viðskiptavinar á Rangárvöllum. Uppsetning spólunnar er forsenda þess að hægt er að leggja strengi á landshlutanum ásamt því að bæta rekstur raforkukerfisins á Rangárvöllum.
Framkvæmdir eru áætlaðar sumarið 2026.