Framkvæmd

Verkefnið felst í innkaupum, lagningu og tengingu nýs 66 kV sæstrengs á milli Rimakots og Vestmannaeyja, Vestamannaeyjalínu 4 og 5. Frá Rimakoti verður lagður 3,5 km langur jarðstrengur sem tengist sæstreng um 250 m frá fjöruborðinu í Landeyjarfjöru, þaðan mun 13 km langur sæstrengur verða lagður til Vestmannaeyja og tengjast 1,3 km jarðstreng að tengivirki í Vestmanneyjum. 

Í tengivirkinu í Vestmannaeyjum verður bætt við 2 rofareitum en rými fyrir þá er til staðar í tengivirkinu. Í Rimakoti þarf að bæta við einum rofareit og setja upp útjöfnunarspólu. 

Áætlað er að framkvæmdir hefjist sumarið 2024, sæstrengurinn verði lagður sumarið 2025 og tengingin verði spennusett haustið 2025.   

Tengiliðir

Ingimar Guðmundsson
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging

Í undirbúningi
Aftur í yfirlit framkvæmda