Framkvæmd

Tengivirkið í Breiðadal er mikilvægur tengipunktur þar sem kemur saman eina tenging Ísafjarðar og Bolungarvíkur við meginflutningskerfið um Breiðadalslínu 1, sem liggur á milli Breiðadals og Mjólkárvirkjunar.

Í maí 2025 var tekið í notkun nýtt tengivirki í Breiðadal.  Virkið er yfirbyggt, 66 kV og gaseinangrað með 4 rofareitum ásamt rými fyrir einn viðbótarrofareit.

Virkið leysir af hólmi eldra útitengivirki sem tekið var í notkun árið 1986 en rekstur þess hafði verið erfiður vegna seltu, snjósöfnunar og ísingar.

Tengiliðir

Karítas Líf Valdimarsdóttir
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging
VEF-16

Lokið
Aftur í yfirlit framkvæmda