Verkefnið felur í sér byggingu nýs yfirbyggðs tengivirkis að Klafastöðum við Grundartanga sem er núverandi staðsetning launaflsvirkis Landsnets sem gangsett var árið 2013.
Hið nýja tengivirki verður 220 kV tengivirki með 7 rofareitum. Þá verður núverandi 220 kV þéttavirki á Brennimel flutt til Klafastaða og inn í rofasal núverandi launaflsvirkis á Klafastöðum.
Jafnframt verða loftlínur færðar tímabundið í tengslum við framkvæmdina og hluti þeirra tengdur inn í nýja virkið í lok framkvæmda.
Framkvæmdir við línubreytingar hófust haustið 2023 og hafist var handa við byggingu nýs tengivirkis 2025. Áætlað er að framkvæmdum ljúki fyrri hluta ársins 2027.