Tengivirki Landsnets við Korpu í Reykjavík er eitt af mikilvægustu tengivirkjum Landsnets og sér þúsundum heimila og hundruðum fyrirtækja fyrir raforku.
Í Korpu hefur verið byggt nýtt yfirbyggð 132 kV gaseinangrað tengivirki með tvöföldum teinum, teinatengirofa og sex rofareitum en jafnframt er gert ráð fyrir möguleika á stækkun um einn reit. Stefnt er að spennusetningu nýs virkis í byrjun árs 2026.
Virkið leysir af hólmi eldra útitengivirki sem tekið var í notkun 1975.