Framkvæmd

Tengivirkið við Vegamót á Snæfellnesi er mikilvægur tengipunktur en þar kemur saman eina tenging Snæfellsness við meginflutningskerfið. Núverandi virki er frá árinu 1975 og þörf er á endurnýjun þess. 

Í stað núverandi útivirkis er unnið að byggingu nýs yfirbyggðs 66 kV gaseinangraðs tengivirkis, með 4 rofareitum ásamt rými fyrir einn viðbótarrofareit, á lóð núverandi virkis. 

Framkvæmdir hófust vorið 2023 og áætlað er að nýtt virki verði spennusett síðla árs 2024. 

Tengiliðir

Karítas Líf Valdimarsdóttir
Verkefnastjóri
563 9300

innviðauppbygging
VEL-04

Í framkvæmd
Aftur í yfirlit framkvæmda