Vegamótalína 2 mun liggja frá tengivirkinu á Vatnshömrum í Borgarfirði til Vegamóta á Snæfellsnesi. Línan verður byggð sem 132 kV loftlína og henni haldið uppi með stöguðum stálröramöstrum. Fyrst um sinn verður hún rekin á 66 kV.
Markmið framkvæmdarinnar er að tryggja tvítengingu Snæfellsness og auka afhendingaröryggi. Í dag er Vegamótalína 1 eina tenging flutningskerfisins fyrir Snæfellsnes.
Með Vegamótalínu 2 skapast betri skilyrði til viðhalds og áframhaldandi reksturs Vegamótalínu 1 og mun hún standa áfram. Eins og með allar eldri línur mun Vegamótalína 1 fara á endurnýjunaráætlun.
Samkvæmt stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku er meginreglan í landshlutakerfum að notast sé við jarðstrengi við lagningu raflína.
Í tilfelli Vegamótalínu 2 er jarðstrengur ekki möguleg lausn, hvorki að hluta til né alla leið. Ástæða þessa er að jarðstrengir framleiða launafl sem veldur spennuhækkun. Kerfið á Snæfellsnesi er nú þegar við efri spennumörk og ræður ekki við frekari hækkun.