Viðauki við eigendastefnu ríkisins
Arðgreiðslustefna, viðmið um fjárhagsleg markmið og arðsemi
Markmið viðmiða um arðsemi, arðgreiðslustefnu og fjármagnsskipan Landsnets er að tryggja trausta og sjálfbæra fjárhagsskipan félagsins til langs tíma, styðja hagkvæma uppbyggingu flutningskerfisins og önnur lögbundin hlutverk félagsins, lágmarka fjármagnskostnað og viðhalda sterku lánshæfi félagsins.
Arðgreiðslustefna
Arðgreiðslur skulu að jafnaði nema 50% af hagnaði fyrra árs. Eiginfjárhlutfall sé í samræmi við markmið og vikmörk samanber eftirfarandi:
- Ef eiginfjárhlutfall er á bilinu 45% - 55% er stefnt að því að arðgreiðslur nemi 50% af hagnaði fyrra árs eftir skatta.
- Ef eiginfjárhlutfall er yfir 55% er stefnt að því að arðgreiðslur nemi 100% af hagnaði fyrra árs eftir skatta, ef aðrir fjárhagslegir mælikvarðar eru uppfylltir.
- Ef eiginfjárhlutfall er á bilinu 40% - 45% er stefnt að því að arðgreiðslur nemi 25% af hagnaði fyrra árs eftir skatta, ef aðrir fjárhagslegir mælikvarðar eru uppfylltir.
Við ákvörðun um fjárhæð arðgreiðslna skal tryggt að félagið viðhaldi sterkri fjárhagsstöðu og er í því tilliti tekið mið af þeim fjárhagslegum mælikvörðum sem lagðir eru til grundvallar.
Viðmið um fjármagnsskipan
Stefnt er á að eiginfjárhlutfall verði að jafnaði 50%. Almenn vikmörk eiginfjárhlutfalls verði 45% - 55%, og ávallt gildi að eiginfjárhlutfall fari aldrei undir 40%.
Auk þess að viðhalda markmiði um eiginfjárhlutfall skal félagið viðhalda fjárhagslegum markmiðum er snúa að greiðslugetu og skuldsetningu. Við ákvörðun um arðgreiðslur og mat á fjárhagslegri stöðu er horft til eftirfarandi mælikvarða og viðmiða:
- Veltufé frá rekstri (FFO) / Nettó skuldir verði yfir 15%
- FFO vaxtaþekja verði yfir 3,8
Viðmið um arðsemi
Stefnt er á að arðsemi eigin fjár verði að jafnaði sem næst viðmiði Raforkueftirlitsins um arðsemi eigin fjár í tekjumörkum. Auk þess er stefnt að því að tryggja heimilaða arðsemi samkvæmt tekjumörkum, það er heimilar heildartekjur.
Tekjumörk Landsnets vegna flutnings raforku eru tvískipt, til dreifiveitna og stórnotenda. Við útreikning viðmiðs um arðsemi eigin fjár verður notað vegið meðaltal arðsemi eigin fjár af flutningi til dreifiveitna og stórnotenda. Hlutfall hvors flokks fer eftir hlutfallslegu vægi í heildartekjumörkum Landsnets.
Heimildir eru innan raforkulaga að flytja ónýttar tekjuheimildir á milli ára. Nýting þeirra heimildar getur haft áhrif á arðsemi hvers árs en til lengri tíma er viðmið sem sett er af Raforkueftirlitinu það sem stefnt er á.
Samþykkt á aðalfundi 19. mars 2026.
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR