Við segjum söguna eins og hún er
Við segjum söguna eins og hún er
Það er stefna okkar að byggja upp ímynd sem tengist fagmennsku, trausti og samfélagsábyrgð. Við leggjum áherslu á frumkvæði í upplýsingagjöf og að allir séu vel upplýstir um starfsemi Landsnets á hverjum tíma.
Okkur er umhugað um að upplýsingagjöf sé ítarleg, auðskiljanleg, heiðarleg og hreinskilin og til þess fallin að auka traust við alla sem eiga í samskiptum við okkur.
Við hjá Landsneti leggjum mikla áherslu á samtal og samvinnu hvort sem það er hér á síðunni eða á samfélagsmiðlum þar sem við hvetjum þig til að taka umræðuna með okkur.