Nýtt tengivirki í Ferjufit tengir Vaðölduver við flutningskerfið


15.09.2026

Framkvæmd

Undanfarin misseri höfum við unnið að uppbyggingu þeirra mannvirkja sem þörf er á svo hægt sé að tengja Vaðölduver við flutningskerfið. Mikilvægur hluti þeirrar uppbyggingar er nýtt tengivirki í Ferjufit og breytingar á flutningslínum á svæðinu.

Vaðölduver, vindmylluver Landsvirkjunar á Þjórsársvæðinu, var gangsett í dag við hátíðlega athöfn. Með gangsetningunni er fyrsti áfangi vindorkuversins kominn í rekstur og tengdur við flutningskerfið.

Breytingar á flutningskerfinu í Ferjufit

Til að tengja Vaðölduver við flutningskerfið hefur nýtt 220 kV tengivirki verið tekið í notkun í Ferjufit. Tengivirkið er yfirbyggt og veitir búnaði betri vörn gegn veðri og öðrum umhverfisáhrifum en við hönnun þess var jafnframt gert ráð fyrir mögulegri stækkun.

Tengivirkið tengist Sigöldulínu 3, sem ber nú heitið Ferjufitjarlína 1, vestan virkisins. Vegna framkvæmdarinnar þurfti að færa hluta loftlínunnar og voru í því skyni reist ellefu ný möstur og þrír endarammar, en níu eldri möstur Sigöldulínu 3 tekin niður.

Með framkvæmdunum í Ferjufit hefur nauðsynlegum tengipunkti fyrir Vaðölduver inn á flutningskerfið verið komið á fót og jafnframt byggðir upp innviðir sem geta stutt við frekari þróun á svæðinu.

Aftur í allar fréttir