Valgeir Örn ráðinn forstöðumaður samskipta


16.07.2026

Framkvæmd

Valgeir Örn Ragnarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður samskipta hjá Landsneti og hefur störf í ágúst. Valgeir mun leiða samskipti fyrirtækisins við almenning, hagaðila og fjölmiðla, auk þess að bera ábyrgð á innri upplýsingagjöf til starfsfólks.

Valgeir hefur víðtæka reynslu úr fjölmiðlum. Hann kemur til Landsnets frá RÚV þar sem hann starfaði frá árinu 2012 við fréttir og dagskrárgerð. Síðustu ár gegndi hann stöðu varafréttastjóra ásamt því að vera sjónvarpsfréttaþulur og stýra umræðuþættinum Silfrinu. Þá hefur hann lagt áherslu á að byggja upp stafræna fréttamiðla RÚV.

Valgeir er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Ríkarður Ríkarðsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, segir að reynsla og þekking Valgeirs muni án efa gagnast fyrirtækinu vel. 

„Landsnet leggur mikla áherslu á opin og góð samskipti. Við viljum eiga aðgengilegt og upplýsandi samtal við landsmenn um okkar mikilvægu starfsemi og um þau verðmæti og lífsgæði sem öflugt flutningskerfi raforku á þátt í að skapa. Ráðning Valgeirs er hluti af breytingum hjá Landsneti til að vera enn betur í stakk búin að sinna okkar hlutverki. Við bjóðum hann velkominn til starfa.“

Aftur í allar fréttir