Lagning nýrra rafstrengja til Vestmannaeyja hafin


25.06.2025

Framkvæmd

Lagning tveggja nýrra rafstrengja frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja er hafin. Verkið er unnið af norska fyrirtækinu Seaworks, sem sérhæfir sig í lagningu neðansjávarrafstrengja.

Flutningsgeta eykst um 120 MVA – verklok um miðjan júlí

Rafstrengirnir, sem nú eru lagðir í sjó, munu auka flutningsgetu til Eyja umtalsvert – eða um allt að 120 MVA þegar þeir koma í rekstur. Tilgangurinn er að bæta afhendingaröryggi raforku til Vestmannaeyja og tryggja örugga orkutengingu til framtíðar. Núverandi strengur hefur verið í notkun í 12 ár og hefur bilað tvisvar, þó hann hafi starfað að mestu gallalaust.

Gert er ráð fyrir að lagningu strengjanna í sjó ljúki um miðjan júlí og að verkefninu verði formlega lokið um mánaðamót ágúst og september.

 

Landtaka án árekstra við aðrar lagnir

Við landtöku rafstrengjanna þarf ekki að gera sérstakar ráðstafanir vegna veitulagna þar sem engar aðrar lagnir eru á því svæði. Hins vegar eru ávallt gerðar ráðstafanir þegar strengir þvera aðrar lagnir – hvort sem þær eru í notkun, laskaðar eða af öðrum toga – til að vernda bæði okkar eigin eignir og annarra aðila.

Aftur í allar fréttir