Ertu með yfirsýn og orku ?


19.08.2016

Framkvæmd

Landsnet leitar að öflugum einstaklingi til að sjá um áætlanagerð og skipulagningu verkefna hjá Netþjónustu er snúa að rekstri og viðhaldi á flutningskerfi Landsnets.

 Netþjónusta tilheyrir framkvæmda- og rekstrarsviði Landsnets og sér um viðhald og rekstur á tengivirkjum, raflínum og öðrum einingum flutningskerfisins á landinu öllu.

Í starfinu felst stýring mannafla og úthlutun tækja til verkefna, ábyrgð á eftirfylgni verkefna og þátttaka í tæknilegum greiningum og útfærslum varðandi mannvirki og búnað. Starfið krefst frumkvæðis og áhuga á raforkumálum. Rík áhersla er lögð á öryggis-, heilsu- og umhverfismál.


Menntunar- og hæfniskröfur

• Menntun á sviði tækni- eða verkfræði
• Reynsla af og þekking á rekstri og viðhaldi raforkukerfa er æskileg
• Frumkvæði, sjálfstæði, færni í mannlegum samskiptum og skipulögð vinnubrögð
• Reynsla af miðlun upplýsinga í töluðu og rituðu máli og hæfileiki til að setja fram efni á skýran hátt

Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2016.

Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfi. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Tinni Kári Jóhannesson (tinni.johannesson@capacent.is) hjá Capacent.

Hér er hægt að sækja um.

Um Landsnet

Við flytjum raforku á Íslandi og stýrum uppbyggingu flutningskerfisins. Við sjáum fyrir okkur rafvædda framtíð sem er í takt við samfélagið og höfum sett okkur það markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar og að ná sátt um þær leiðir sem farnar verða. Við viljum taka tillit til þarfa samfélagsins á hverjum tíma og sýnum ábyrgð í umgengni við náttúruna. Við berum umhyggju hvert fyrir öðru og viljum skapa góðan vinnustað með spennandi verkefnum. Við höfum að leiðarljósi gildin okkar: samvinnu, ábyrgð og virðingu.

Aftur í allar fréttir