Nýverið voru tilboð opnuð í rafrænu útboði Landsnets fyrir raforku sem áætlað er að muni tapast á 3. ársfjórðungi þessa árs en fyrirtækið býður út alla þá orku sem tapast í flutningskerfinu.
„Þátttaka raforkusala í útboðinu var góð, alls bárust tilboð frá 5 raforkusölum og buðu fjórir þeirra í stóran eða allan hluta raforkunnar. Við veljum síðan hagstæðustu tilboðin þar til áætlunin er uppfyllt. Að þessu sinni gerum við samninga við 3 sölufyrirtæki. Þetta er sá ársfjórðungur (þriðji) sem sögulega hefur verið með lægsta meðalverð ársins og einnig eru flutningstöp aðeins lægri á þessum tíma árs í takt við almenna raforkunotkun á landinu öllu.“ Segir Íris Baldursdóttir, framkvæmdastjóri Kerfisstjórnunarsviðs.
Orka með fullum nýtingartíma lækkar í verði, en breytileg orka hækkar
Landsnet býður út tvenns konar vörur, annars vegar er um að ræða grunntöp með fullum nýtingartíma og hins vegar eru það viðbótartöp með 44% nýtingartíma og sveigjanleika sem nemur magn aukningu eða – minnkun um +/- 30%. Niðurstaða útboðsins er sú að verð í grunntöpin lækkaði að meðaltali um 4,2% í samanburði við sama ársfjórðung síðasta árs en meðalverð viðbótartapa hækka frá fyrra ári um 4,4%. Í heildina lækkar meðalverð orkunnar um 2,6%.
Samningar gerðir við þrjá raforkusala
Að þessu sinni gerir Landsnet samninga við þrjá raforkusala á grundvelli þeirra tilboða sem bárust og er heildarkostnaður þeirra 366 millj.kr. Samið hefur verið við Íslenska orkumiðlun, Landsvirkjun og Orku náttúrunnar. Til að geta tekið þátt í rafrænum útboðum á raforku vegna flutningstapa þurfa raforkusölufyrirtæki að gera rammasamning við Landsnet. Rammasamningur skyldar þó ekki fyrirtæki til þess að taka þátt í útboðunum, enda er það val hvers sölufyrirtækis hverju sinni. Í dag eru 5 raforkusalar með rammasamning við Landsnet: HS orka, Íslensk orkumiðlun, Landsvirkjun, Orka náttúrunnar og Orkusalan.
Öll tilboð birt á heimasíðu Landsnets
Öll tilboð sem bárust vegna útboðsins eru birt á hér á www.landsnet.is og þar er hægt að skoða nánar dreifingu tilboða og bera saman við tilboð fyrri útboða.
Samanburður við Nordpool
Nordpool er stærsti raforkumarkaður í Evrópu og Landsnet ber saman meðal raforkuverð vegna flutningstapa við verð á Nordpool frá byrjun árs 2015.
Flutningstöp er sú raforka sem tapast vegna viðnáms í raflínum og spennum í raforkuflutningskerfinu. Ríflega 2% þeirrar raforku sem mötuð er inn á kerfið tapast á leið til notenda. Sú raforka samsvarar um 400 GWh/ári sem jafngildir framleiðslu Kröflustöðvar eða raforkunotkun um 1.500 rafmagnsbíla á einu ári.