Bein útsending frá kynningarfundi um kerfisáætlun


24.06.2020

Framkvæmd

Kerfisáætlun Landsnets fyrir tímabilið 2020-2029, ásamt framkvæmdaáætlun fyrir árin 2021-2023 og umhverfisskýrslu, eru nú í opnu umsagnarferli.

Smellið hér til að fylgjast með fundinum. 

Helsta breyting sem orðið hefur á áætluninni er að núna er samfelld 220 kV tenging frá Suðurnesjum og að Austurlandi komin á 10 ára áætlun. Tengingin mun ná um Vesturland og Norðurland og austur á land sem þýðir að landshlutar verða samtengdir með fullnægjandi tengingum sem auka mun afhendingaröryggi og tiltæka afhendingargetu á landinu öllu auk þess sem hún mun auðvelda nýjum notendum og framleiðendum að tengjast kerfinu. Einnig inniheldur áætlunin umfjöllun um framtíðarþróun meginflutningskerfisins og er þá fjallað um tvær meginleiðir. Annars vegar að koma á annarri tengingu á milli landshluta um hálendið, ýmist með riðstraums- eða jafnstraumstengingu, og hins vegar að tengja saman kerfin suður fyrir jökla. 


Breyttar áherslur í framkvæmdaáætlun


Síðast liðinn vetur sýndi okkur svo munaði hversu mikilvægt það er að flutningskerfið sé öruggt. Í kjölfarið á fárviðrinu sem gekk yfir landið setti ríkisstjórnin fram aðgerðir sem miða að styrkingu og uppbygginu á flutningskerfinu og bera verkefni á nýrri framkvæmdaáætlun þess glögglega merki. Í áætluninni má finna ný verkefni, bæði í meginflutningskerfinu sem og í svæðisbundnu flutningskerfunum sem sérstaklega er ætlað að bæta afhendingaröryggi í landinu á sem skemmstum tíma. Sem dæmi um ný verkefni á framkvæmdaáætlun má nefna Blöndulínu 3, Hrútafjarðarlínu á milli Hvalfjarðar og Hrútafjarðar ásamt nýrri tengingu til Dalvíkur og nýrri tengingu á milli Hellu og Rimakots. Einnig inniheldur áætlunin byggingar á tengivirkjum sem ýmist eru hugsaðar sem endurbygging á eldri útivirkjum og eins virki sem byggð eru í þeim tilgangi að bæta afhendingaröryggi með aukinni möskvun kerfisins. Má þar m.a. nefna tengivirki á Klafastöðum í Hvalfirði, Njarðvíkurheiði, Korpu, Hrútatungu og í Breiðadal á norðanverðum Vestfjörðum.

Nánari upplýsingar um framkvæmdir, tímaramma og hagræn áhrif má finna á www.landsnet.is.

 

Dagskrá fundarins.

Á fundunum verða flutt erindi og spurningum svarað í kjölfarið:

Veðrið, veiran og við hjá Landsneti.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri 

Flutningskerfið og launaþróun.

Jón Skafti Gestsson, sérfræðingur á fjármálasviði.

Kerfisáætlun 2020 – 2029.

Gnýr Guðmundsson, yfirmaður greininga og áætlana raforkukerfisins.

Fundarstjóri Elín Sigríður Óladóttir, samráðsfulltrúi.

 

 


Aftur í allar fréttir