Við hjá Landsneti tökum nú þátt í mjög spennandi verkefni í Nátthaga í nágrenni við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli.
Verkefnið snýst um að freista þess að mæla áhrif hraunrennslis á lagnir í jörðu. Aðilar sem koma að þessu verkefni eru Almannavarnir, Jarðvísindastofnun HÍ, Veðurstofa Íslands, Landsvirkjun, Neyðarlínan, Verkís, Efla, Míla, Gagnaveitan, Tensor, Rafholt o.fl.
Grafinn hefur verið skurður í mynni Nátthaga og í hann lagðar lagnir, rör og ýmsar tegundir af einangrunar- eða fylliefnum. Við höfum fengið afnot af öðrum enda skurðsins og í hann er settur strengsandur og hann þjappaður eftir kúnstarinnar reglum. Hitamælar settir í skurðinn og svo er fyllt upp í hann. Svo bíðum við spennt og vonumst til þess að hraunið renni yfir skurðinn. Heppnist þessi tilraun vonumst við til þess að eignast mæliniðurstöður sem telja má einstakar á heimsvísu og verða mjög mikilvægt innlegg í vitneskju um áhrif hraunflæðis á jarðstrengi og aðra innviði sem grafnir eru í jörðu.