Þann 1. apríl var gerð breyting á gjaldskrá Landsnets vegna flutningstapa.
Nú liggur fyrir kostnaður við útboð á flutningstöpum fyrir annan ársfjórðung 2020 og verður gjald vegna flutningstapa fyrir þann ársfjórðung 99,85 kr. á MWst.
Gjald vegna flutningstapa fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 var 107,30 kr. á MWst. Flutningstöp eru boðin út á þriggja mánaða fresti og endurspeglar innkaupsverð okkar gjaldskrá vegna flutningstapa hverju sinni.
Nauðsynlegt er að breyta gjaldskrá vegna flutningstapa frá 1. apríl til að endurspegla rétt virði. Aðrir gjaldskrárliðir, en þeir sem eru nefndir hér að ofan, munu haldast óbreyttir.
Hér er hægt að nálgast gjaldskránna