Upprunaábyrgðir (Græn skírteini) er staðfesting á að raforkan sé framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum, það er beinn stuðningur við slíka orkuframleiðslu innan Evrópu og hvatning til áframhaldandi uppbyggingu innan geirans. Þetta er einnig leið fyrirtækja til að votta sína vöru og þjónusta með alþjóðlegum umhverfisvottunum.
Hlutverk Landsnets er að gefa út upprunaábyrgðir vegna framleiddrar raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum og innheimtir gjald á hverja megawattstund (MWst) af viðkomandi framleiðanda. Hægt er að lesa sér meira til um upprunaábyrgðir hér.
Gjaldskrá Landsnets vegna upprunaábyrgða hækkar um 4% 1. janúar 2017. Breytingin verður gerð á gjaldi fyrir hvert útgefið skírteini, ásamt inn og útflutningi. Aðrir liðir haldast óbreyttir.
Gjaldskrá vegna útgáfu upprunaábyrgða.
frá 1. maí 2014
|
frá 1. jan 2017
|
||
Árgjald
|
kr/ári
|
250.000
|
250.000
|
Fyrir hvert útgefið skírteini
|
kr/MWst
|
3,60
|
3,75
|
Inn/útflutningur
|
kr/MWst
|
3,60
|
3,75
|
Fyrir hvert afskráð skírteini
|
kr/MWst
|
1,60
|
1,60
|
Vottun virkjunar
|
kr
|
200.000
|
200.000 |
Gjaldskráin mun taka gildi 1. janúar 2017 og verður birt á heimasíðu Landsnets 2. janúar 2017, hana má finna hér.