Landsnet ætlar í kjölfar alvarlegs óhapps á dögunum að efna til kynningarherferðar um öryggismál og mikilvægi þess að tryggja að verktakar og aðrir framkvæmdaaðilar taki tillit til háspennumannvirkja við áhættugreiningu verkefna.
Óhappið sem um ræðir átti sér stað á fimmtudag í síðustu viku þegar steypudælubóma sló út Hellulínu 2, 66 kV háspennulínu á Rangárflötum rétt suðaustan við þéttbýlið á Hellu, en þar stóðu þá yfir byggingaframkvæmdir. Engin slys urðu á fólki en dekk á dælubílnum skemmdist þegar bóman snerti línuleiðarana og leysti hún út í kjölfarið.
Mjög alvarlegt atvik
Atvikið, sem metið er mjög alvarlegt hjá Landsneti, var strax tilkynnt til lögreglunnar á Hvolsvelli og var tekin skýrsla af hluteigandi. Fulltrúi Landsnets hraðaði sér einnig á vettvang til að kanna aðstæður og meta hugsanlegar skemmdir. Þegar ljóst var að hvorki hefðu orðið slys á fólki eða skemmdir á línunni var hún sett aftur í rekstur. Óhappið hafði ekki í för með sér straumleysi eða truflanir fyrir notendur á Suðurlandi.
Fulltrúar netreksturs Landsnets og öryggisstjóri fyrirtækisins fóru yfir málsatvik strax daginn eftir óhappið. Þar var ákveðið að efna til kynningarherferðar með þeim aðilum sem gefa út byggingarleyfi um öryggismál og mikilvægi þess að tryggja að allir framkvæmdaaðilar taki tillit til háspennumannvirkja við áhættugreiningu viðkomandi verkefnis.
Fundað um öryggismál
Öryggisstjóri Landsnets fór einnig yfir stöðu öryggismála almennt með fulltrúa aðalverktakans sem er að byggja á Rangárflötum í byrjun þessarar viku. Í framhaldinu mættu svo öryggisstjóri og yfirmaður tæknimála hjá netrekstri til fundar síðastliðinn miðvikudag á Hellu með byggingarstjóra, verkstjórum og starfsmönnum verktakans. Þar voru kynntar ítarlega þær hættur sem fylgt geta vinnu í námunda við háspennt mannvirki, ásamt ábyrgð viðkomandi við slíkar aðstæður, og fyrirspurnum svarað.
Almenn ánægja var með fundinn að honum loknum en mikil áhersla er lögð á það hjá Landsneti að allir sem starfa hjá fyrirtækinu, eða fyrir það, kynni sér ítarlega allt sem viðkemur öryggismálum. Hefur fyrirtækið gefið út sérstaka öryggishandbók og fleira kynningarefni um þessi mál og efnt er til kynninga, bæði á íslensku og ensku, fyrir starfsfólk verktaka sem þess óska.
Sjá nánari umfjöllun á heimasíðu Landsnets um öryggi og vinnuumhverfi
Myndir af dælubílnum og frá vettvangi.