Landsnet á framtak ársins á sviði loftslagsmála - fyrir snjallnet á Austurlandi


12.10.2017

Framkvæmd

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhent við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem er í dag. Landsnet fékk verðlaun fyrir framtak ársins á sviði loftslagsmála fyrir snjallnet á Austurlandi en Icelandair hótel voru valin umhverfisfyrirtæki ársins. Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður fyrirtækisins veitti verðlaunum móttöku á Hilton Reykjavík Nordica

„Við erum mjög stolt af þessu verkefni og frábært að fá viðurkenningu á því að við séum að gera vel þegar kemur að verkefnum sem snúa að loftlagmálum og hlýnun jarðar. Snjallnetið á Austurlandi er verkefni sem margir komu að og fyrir okkur er viðurkenningin hvatning til að gera enn betur á vegferð okkar í átt að rafrænni grænni framtíð“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir.

Í rökstuðningi dómnefndar segir m.a.:

„Verkefnið sem í ár hlýtur viðurkenningu fyrir umhverfisframtak ársins felur í sér þróun á sjálfvirkri stýringu á raforkuafhendingu fyrir sex fiskimjölsverksmiðjur á Austurlandi ásamt álagsstýringum í álverum, svokallað Snjallnet. Þróuð var ný aðferðafræði sem hægt er að beita innan staðbundinna raforkukerfa sem glíma við flutningstakmarkanir. Markmiðið var að geta flutt meiri orku í gegnum flöskuhálsa án þess að minnka rekstaröryggi svæðanna. Með þessum hætti er hægt að nýta betur núverandi raforkukerfi og gefa verksmiðjum færi á að skipta hráolíu út fyrir rafmagn sem framleitt er með endurnýjanlegum orkugjöfum. Með innleiðingu Snjallnetsins á Austurlandi náðist verulegur árangur: M.a. Aukin flutningsgeta upp á 350 GWh á ári en það er á við árlega heimilisnotkun um 85 þúsund heimila eða 170 þúsund rafbíla. Einnig sparnaður neikvæðra umhverfisáhrifa upp á 90.000 tonn af kolefnislosun árlega sem er ígildi losunar frá rúmlega 50.000 bifreiðum.“

Ragna Sara Jónsdóttir, formaður dómnefndar verðlaunanna gerði grein fyrir valinu sem hún sagði hafa verið erfitt þar sem mörg frambærileg verkefni komu til greina. Í dómnefnd auk hennar sátu Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík.

 

Aftur í allar fréttir