Landsnet hefur í kjölfar útboðs, samið við HS Orku, Landsvirkjun og Orku náttúrunnar, um kaup á reglunaraflstryggingu fyrir árið 2021
Landsnet heldur utan um svokallaðan reglunaraflsmarkað, en tilgangur hans er að geta mætt ófyrirséðum frávikum í raforkunotkun- og framleiðslu innan hverrar klukkustundar. Raforkusalar geta boðið afl inn á þennan markað sem notað er til að regla og er tilboðum tekið ýmist í uppreglun eða niðurreglun í því magni sem frávikið er á hverri stundu. Landsnet tryggir, með samningum um reglunaraflstryggingu, lágmarksafl inn á markaðinn; 40 MW til uppreglunar og 40 MW til niðurreglunar, en lágmarks eining tilboða er 1 MW fyrir heila klukkustund eða 1 MWst.
Reglunaraflstrygging er hluti þeirrar kerfisþjónustu sem Landsneti er gert að sinna samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003 og í samræmi við reglugerð nr. 513/2013 um kerfisstjórnun. Aðrir þættir sem eru hluti af kerfisþjónustu eru reiðuafl og aðgengi að varaafli.
Heildarkostnaður samninganna þriggja er tæpar 382 milljónir króna. Meðalverð hverrar eins megawatta einingar er 545 krónur/MWst sem er um 2,8% hækkun frá fyrri samningi. Munur er á verði reglunarafls til uppreglunar annars vegar og niðurreglunar hins vegar og er meðalverð hverrar eins megawatta einingar til uppreglunar 767 krónur/MWst en til niðurreglunar 323 krónur/MWst.