Ógildingu eignarnáms hafnað


15.06.2017

Framkvæmd

Hæstiréttur staðfesti í dag niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna ógildingu á ákvörðun atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um að heimila eignarnám vegna Kröflulínu 4.

Samningar náðust við 17 af 19 sameigendum að óskiptu landi Reykjahlíðar sem samtals eiga um 92% eignarhluta jarðarinnar. Þar sem ekki náðust samningar við alla landeigendur leitaði Landsnet, að loknu löngu samningaferli, eftir heimild atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til eignarnáms.

Á grundvelli eignarnámsheimildar úrskurðaði matsnefnd eignarnámsbóta að bætur til þeirra landeigenda sem samningar náðust ekki við næmu kr. 2.519.392. Boði Landsnets um greiðslu eignarnámsbóta í kjölfar úrskurðar matsnefndarinnar var hafnað.

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir það aldrei gott að þurfa að óska eftir eignarnámi og segir dóminn fela í sér staðfestingu á því að rétt hafi verið staðið að undirbúningi ákvörðunar um að heimila eignarnám og að undirbúningur framkvæmdarinnar hafi verið án annmarka.

„Það er mjög óheppilegt að í stóru verkefni sem varðar hagsmuni margra aðila sé svo seint í ferlinu verið að útkljá ágreiningsmál varðandi grundvöll þess að af framkvæmdum geti orðið„ segir Guðmundur.

Kröflulína 4 liggur frá Kröfluvirkjun að Þeistareykjavirkjun. Línan er um 33 km að lengd með 104 möstur, þar af 10 km í landi Reykjahlíðar og 35 möstur. Vinnu við vegslóð og undirstöður mastra er lokið nema í landi Reykjahlíðar. Búið er að reisa 60 af 69 möstrum utan Reykjahlíðar.

Aftur í allar fréttir