Í dag var skrifað undir samning við Steypustöð Skagafjarðar um lagningu jarðstrengs á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur með viðeigandi greftri, slóðagerð og frágangsvinnu.
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnet segir að með lagningu Grundarfjarðarlínu 2, 66 kV jarðstrengs milli Ólafsvíkur og Grundarfjarðar og byggingu nýrra tengivirkja aukist afhendingaröryggi raforku á svæðinu til muna.
„ Strengurinn mun auka afhendingaröryggi á svæðinu en truflanir með tilheyrandi straumleysi hafa verið tíðar á Snæfellsnesi undanfarin ár. Loftlínan á milli Ólafsvíkur, Vegamóta og Grundarfjarðar liggur um veðurfarslega mjög erfitt svæði á Fróðárheiði og m.a. þess vegna var jarðstrengur talinn betri kostur," segir Guðmundur Ingi.
Undirbúningur hófst 2015
Vinna við undirbúning, hönnun, útboð og jarðvinnuframkvæmdir vegna byggingar tengivirkis í Grundarfirði hófst árið 2015. Framkvæmdir við Grundarfjarðartengivirki hófust árið 2016, einnig vinna við hönnun nýs tengivirkis í Ólafsvík og gengið var frá innkaupum á jarðstreng. Vinna við strenginn hefst á næstu vikum og er stefnt að því að framkvæmdum verið að fullu lokið, með yfirborðsfrágangi sumarið 2018.
Ljósmynd: Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets, Ásmundur Pálmason framkvæmdastjóri Steypustöðvar Skagafjarðar, Anna Sigga Lúðvíksdóttir sérfræðingur í innkaupum hjá Landsneti, Friðrik Pálmason verkefnastjóri og Steingrímur Óskarsson verkstjóri hjá Steypustöð Skagafjarðar við undirskriftina í dag.