Sigöldulína 4/Prestbakkalína 4 leysti út


07.12.2015

Framkvæmd

Sigöldulína 4 og Prestbakkalína 1, milli Sigöldu og Hóla við Hornafjörð, leysti út rétt upp úr klukkan átta í kvöld og olli það rafmagnsleysi í Vestur-Skaftafellssýslu út frá Prestbakka. Línan var spennusett aftur en leysti fljótlega út á nýjan leik og er ekki vitað á þessari stundi hvenær straumur kemst á aftur.

Þá hefur Breiðadalslína 1 milli Mjólkárvirkjunar og Breiðadals við Önundarfjörð verið tekin úr rekstri til að auka afhendingaröryggi rafmagns á norðanverðum Vestfjörðum. Norðanverðir Vestfirðir fá nú rafmagn frá vararafstöð í Bolungarvík  

Að öðru leyti hafa ekki orðið teljandi vandræði í meginflutningskerfi Landsnets en rafmagnstruflanir hafa orðið hjá dreifiveitu á Suðurlandi. Viðgerðar- og viðbragðshópar frá Landsneti eru nú í startholunum á Geithálsi, Brennimel, Kolviðarhól, Sultartanga og víðar á Suðurlandi, í Fljótsdal og víðar á Austurlandi og í Varmahlíð í Skagafirði. Einnig er Landsnet í samstarfi um fyrsta viðbragð við dreifiveitur og verktaka auk þess sem raforkuframleiðendur, veitur og stórnotendur eru einnig með aukinn viðbúnað vegna óveðursins. Þá er fylgst grannt með gangi mála í stjórnstöð Landsnets í Reykjavík og einnig er maður frá Landsneti staðsettur í upplýsingamiðstöð Almannavarna í Skógarhlíð.

 

Aftur í allar fréttir