Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrsla 2025 komin út


25.02.2026

Framkvæmd

Sjálfbærni-, árs- og frammistöðuskýrsla Landsnets fyrir árið 2025 er komin út. Í skýrslunni er gerð grein fyrir rekstri félagsins, uppbyggingu flutningskerfisins, afhendingaröryggi og helstu áherslum í sjálfbærnimálum.

Uppbygging, öryggi og ábyrg stefna

Árið 2025 einkenndist af áframhaldandi styrkingu flutningskerfisins og markvissri vinnu við að tryggja stöðugan raforkuflutning um allt land. Í breyttu umhverfi, þar sem áhersla á orkuskipti, áfallaþol innviða og fjölþátta ógnir hafa aukist, er mikilvægt að uppbygging kerfisins sé ábyrg og sjálfbær.

„Orkuskipti kalla á uppbyggingu flutningskerfisins. Sú uppbygging þarf að vera sjálfbær og byggja á skýrri forgangsröðun. Við vinnum stöðugt að því að koma umhverfis- og samfélagsáherslum inn í okkar daglegu störf, þegar við tökum ákvarðanir um forgangsröðun verkefna, rekstur kerfisins og þegar við fjöllum um okkar helstu áhættur í rekstrinum “ segir Guðný Björg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og umbóta hjá Landsneti.

Á árinu 2024 var tekin ákvörðun um að fylgja nýjum kröfum Evrópusambandsins um sjálfbærniskýrslugjöf og færa skýrslugjöfina yfir í ESRS-staðal. Með því undirbjó Landsnet sig fyrir auknar kröfur um gagnsæi og samræmda upplýsingagjöf og er þeirri vegferð haldið áfram í skýrslu ársins 2025, með þeim breytingum sem gerðar voru á staðlinum á síðasta ári, þó svo að krafan sé ekki lögbundin.

Flutningskerfið er burðarás orkukerfis landsins og þarf að standa sjálfstætt við allar aðstæður. Skýrslan sýnir hvernig Landsnet vinnur að því að styrkja innviði, efla viðbúnað og tryggja að kerfið haldi í við vaxandi eftirspurn raforku.

Skýrslan veitir yfirsýn yfir:

  • rekstur og fjárhagslega stöðu Landsnets framkvæmdir, undirbúningur og viðhald flutningskerfisins
  • afhendingaröryggi og viðbúnað
  • umhverfisáhrif og samfélagslega þætti starfseminnar

 

Skýrslan er aðgengileg hér á vef Landsnets.

Aftur í allar fréttir