Landsnet vinnur nú að tillögu að matsáætlun vegna byggingu Hólasandslínu 3. Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt 22. tl. í 1. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Tillaga að matsáætlun er nú birt á vinnslustigi hér á heimasíðu Landsnets og á heimasíðu verkfræðistofunnar EFLU.
Hólasandslína 3
Stöðugleika raforkukerfisins á Norður- og Austurlandi þarf að bæta svo það ráði betur við truflanir, einnig þarf að auka hagkvæmni í orkuvinnslunni með samtengingu virkjanasvæða og til að mæta þörfum við uppbyggingu og núverandi atvinnustarfsemi á svæðinu. Framkvæmdirnar eru einnig mikilvægar fyrir flutningskerfi landsins í heild sinni þar sem um er að ræða mikilvægan hlekk í styrkingu tengsla milli sterkari hluta þess á suðvesturhorninu og veikari hluta þess austanlands. Línan mun því bæta afhendingaröryggi raforku á Norður- og Austurlandi til muna.
Matsáætlun
Í matsáætlun eru upplýsingar um fyrirhugaða framkvæmd, framkvæmdasvæðinu er lýst og sagt frá valkostum, sem þegar er ákveðið að skoða í matsferlinu. Lagðar eru fram upplýsingar um umfang og áherslur mats á umhverfisáhrifum, tilgreint hvaða fyrirliggjandi gögn verði nýtt við matsvinnuna og hvaða gagnaöflun sé yfirstandandi eða fyrirhuguð.
Samkvæmt tillögu Landsnets er ráðgert að meta áhrif framkvæmdarinnar á eftirtalda þætti: Gróður, fugla, vatnalíf, jarðmyndanir, landslag og sjónræna þætti, útivist og ferðamennsku, fornleifar, svæði á náttúruminjaskrá, vatnsvernd og neysluvatn, landnotkun og skipulag og áhrif á heilsu og öryggi.
Óskað er eftir ábendingum og athugasemdum sem nýst geta við komandi matsvinnu. Allir geta gert athugasemdir við drögin. Hægt er að senda athugasemdir til Friðriku Marteinsdóttur hjá verkfræðistofunni EFLU á netfangið fridrika.marteinsdottir@efla.is frá 4. til 25. janúar. Skriflegar athugasemdir skal merkja „Hólasandslína 3 220 kV. Drög að tillögu að matsáætlun“ og senda á eftirgreint heimilisfang: EFLA Verkfræðistofa, V.t. Friðrika Marteinsdóttir, Hofsbót 4a, 600 Akureyri.