Vala Valþórsdóttir ráðin framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags


03.09.2026

Framkvæmd

Vala Valþórsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags og kemur hún til starfa í byrjun október. Vala er lögfræðingur að mennt og hefur fjölbreytta reynslu úr viðskiptalífi og orkugeiranum.

Frá árinu 2023 hefur Vala gegnt stöðu forstjóra Sæbýlis hf., íslensks nýsköpunarfyrirtækis sem vinnur að uppbyggingu landeldis á sæeyrum á Íslandi. Þar hefur hún leitt félagið í gegnum uppbyggingar- og þróunarskeið með áherslu á fjármögnun, stefnumótun, markaðs- og viðskiptaþróun og undirbúning fyrir frekari uppbyggingu starfseminnar.

Áður starfaði hún við viðskiptaþróun hjá Landsvirkjun þar sem hún bar á­byrgð á tæki­færa­sköpun væntan­legra við­skipta­vina Landsvirkjunar og studdi upp­byggingu nýrra iðn­greina. Þar áður starfaði hún sem rekstrarstjóri hjá 66°Norður þar sem hún stýrði innlendri smásölu félagsins.

Ragna Árnadóttir forstjóri segir mikinn feng að fá Völu til liðs við Landsnet. 

„Fjölbreytt reynsla hennar af viðskiptalífi, orkumálum og fyrirtækjarekstri fellur vel að framtíðarsýn Landsnets, sem er áreiðanlegt flutningskerfi sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins. Virkt samstarf við hagaðila er ein af okkar lykiláherslum og grundvöllur þess að byggja áfram upp samkeppnishæfa orkuinnviði sem þjóna samfélagi og atvinnulífi. Við hlökkum að taka á móti Völu.“

Vala kveðst vera spennt fyrir því að ganga til liðs við Landsnet og taka þátt í þeirri vegferð sem fram undan er. 

„Öflugir og áreiðanlegir orkuinnviðir eru ein af lykilforsendum áframhaldandi verðmætasköpunar og þróunar íslensks samfélags og verkefnin næstu árin eru bæði stór og spennandi. Ég hlakka til að vinna með öflugu fólki innan Landsnets, eiga gott og farsælt samstarf við viðskiptavini og hagaðila, sem og að leggja mitt af mörkum við þá mikilvægu uppbyggingu sem fram undan er.“

Aftur í allar fréttir