Við hjá Landsneti erum byrjuð að móta kerfisáætlun 2020-2029 samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003. Samhliða er unnið umhverfismat á umhverfisáhrifum kerfisáætlunar skv. lögum nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
Megintilgangur matsvinnu er að tryggja að tekið verði tillit til umhverfisjónarmiða við ákvarðanir um áætlunina, draga úr eða koma í veg fyrir neikvæð umhverfisáhrif og upplýsa um hugsanlegar afleiðingar kerfisáætlunar á umhverfið.
Í matslýsingu er meðal annars gerð grein fyrir meginforsendum kerfisáætlunar og hvernig efnistök umhverfisskýrslu eru fyrirhuguð. Fram kemur hvaða þættir áætlunarinnar eru taldir að verði helst fyrir áhrifum, í hverju valkostagreining mun felast, hvaða gögn verða lögð til grundvallar ásamt matsspurningum og viðmiðum við mat á vægi og umfangi umhverfisáhrifa.
Kynning og samráð vegna umhverfismatsvinnu kerfisáætlunar er í samræmi við lög um umhverfismat áætlana og mun Landsnet birta öll helstu gögn á heimasíðu fyrirtækisins.
Hér má nálgast Matslýsingu fyrir Kerfisáætlun 2020-2029
Athugasemdafrestur:
Hægt er að senda athugasemdir og ábendingar um matslýsingu á netfangið landsnet@landsnet.is, merkt „matslýsing“. Frestur til að senda athugasemdir er til og með 23. desember 2019