Netmáli um tæknilegar kröfur vinnslueininga sem tengjast flutningskerfinu (D1)

Markmið og tilgangur
Greiningar og hönnun
Ritun og samráð átti sér stað á árinu 2016
Umsagnarferli
Umsagnarferli viðskiptavina lauk 13. desember 2016 Yfirferð umsagna, uppfærsla netmála og viðbrögð við athugasemdum lauk á árinu 2017
Samþykktarferli
Netmálinn var sendur til staðfestingar hjá ráðuneytinu í byrjun febrúar 2018
Gildistaka
Gildistaka af útgáfu nr.2 af netmála D1 var 1. júlí 2018

Opnaður möguleiki fyrir vindmyllur að tengjast flutningskerfinu

Netmáli D1 skilgreinir tæknilegar kröfur flutningsfyrirtækisins fyrir virkjanir sem tengjast flutningskerfinu. Eldri netmáli (útg. 1.0) náði yfir vatns- og gufuaflsvirkjanir sem eru stærri en 7 MW.

Vegna aukins áhuga á tengingu vindmylla við flutningskerfið og virkjun smærri virkjana (undir 10 MW) var þörf á að endurskoða eldri netmála. 

Markmið nýja netmálans var að setja inn kröfur fyrir vindlundi og virkjanir sem eru frá 1,5 MW og tengjast flutningskerfinu. Netmálinn hefur verið aðlagaður að netmála ENTSO-E, sem hefur orðið að reglugerð Evrópusambandsins, og að íslenskum aðstæðum þar sem við á. Eftir breytingar geta vindlundir og smávirkjanir tengst við flutningskerfið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. 

Eftir að ný drög að netmála voru tilbúin og þau höfðu farið í gegnum umsagnarferli með viðbrögðum frá Landsneti vegna athugasemda viðskiptavina var hann sendur til staðfestingar hjá ráðuneytinu. 

Netmálinn tók gildi þann 1.júlí 2018 eftir staðfestingu frá ráðuneytinu.

ENTSOE grid code

Fylgiskjöl

Gögn

Drög - Netmáli um tæknilegar kröfur til vinnslueininga sem tengjast flutningskerfin

ENTSOE grid code