Gjaldskrá Landsnets (B1) - afhendingaröryggi
Landsnet er að þróa flutingsgjaldskrá sem er viðeigandi fyrir framtíðarorkukerfi Íslands og í samræmi við íslenska orkustefnu sem og stefnu Landsnets. Þessi fasi verkefnisins er endurskoðun á skilmálum um afhendingaröryggi í flutningsgjaldskrá Landsnets. Orkustofnun setti Landsneti skilyrði að innleiða í gjaldskrá sína ákvæði sem tekur tillit til afhendingaröryggis við gjaldtöku við úttekt á einstökum afhendingarstöðum og hafi um það samráð fyrir dreifiveitur. Orkustofnun setti skilyrðið samhliða samþykki á breytingum á innmötunargjaldi sem tóku gildi 1. apríl 2022. Samhliða er verið að skoða skerðanlegan flutning vegna náinna tengsla við afhendingaröryggi.
Fylgiskjöl
Stefnuyfirlýsing Landsnets og vinnupakki 2022 vegna þróunar á flutningsgjaldskrá
Afhendingaröryggi í afhendingarstöðum dreifiveitna
FLÝTILEIÐIR
FLÝTILEIÐIR