Breytingar á skilmála B7 um mæligögn, notkunarferil og notkunarferilsuppgjör.

Markmið og tilgangur
Ný aðferð við útreikning hlutfallstalna vegna fjölgunar tímamælinga.
Greiningar og hönnun
Unnið í nánu samstarfi við Netorku.
Umsagnarferli
Er í umsagnarferli sem er opið til og með 27. ágúst.
Samþykktarferli
Gildistaka

Undanfarið höfum við unnið að breytingum á skilmála B7 um mæligögn, notkunarferil og notkunarferilsuppgjör í nánu samstarfi við Netorku. Vegna fjölgunar tímamælinga hjá dreifiveitum samhliða snjallmælavæðingu var nauðsynlegt að endurskoða hvernig útreikningar áætlaðra hlutfallstalna og lotudreifingar álestra vegna útreikninga endanlegra hlutfallstalna eru gerðir.

Báðir þessir þættir hafa gengið út frá því að notkunarferill hvers dreifisvæðis sé sambærilegur milli sömu mánaða hvers árs. Við umtalsverða fjölgun tímamælinga er það hins vegar langt frá því að vera raunin og hefur í för með sér tímabundnar skekkjur í útreikningi meðan misræmi er í notkunarferlum hvers mánaðar milli ára.

Breytingarnar sem nú eru lagðar til á skilmála B7 miða að því minnka þá skekkju sem núverandi útreikningar hafa í för með sér.

Fylgiskjöl

Gögn fyrir umsagnarferli

B7 útgáfa 5.0 - Skilmálar um samskipti milli aðila á raforkumarkaði með grunn- mæli- og uppgjörsgögn

B7 útgáfa 5.0 með breytingum - Skilmálar um samskipti milli aðila á raforkumarkaði með grunn- mæli- og uppgjörsgögn